02.02.16 - 00:17
Magnús Már Einarsson
Böddi löpp til Midtjylland (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Dönsku meistararnir í Midtjylland hafa fengið vinstri bakvörðinn Böðvar Böðvarsson á láni frá FH. Lánssamningurinn gildir út tímabilið í Danmörku en því lýkur í lok maí.
Midtjylland getur keypt Böðvar að lánssamningi loknum en geri félagið það ekki þá fær leikmaðurinn ekki leikheimild með FH fyrr en 15. júlí þegar íslenski félagaskiptaglugginn opnar.

Böðvar er fastamaður í íslenska U21 árs landsliðinu en hann á að berjast við hinn tékkneska Filip Novak um stöðu vinstri bakvarðar hjá Midtjylland eftir að félagið seldi Jesper Lauridsen til Esbjerg.
Midtjylland er í 3. sæti í dönsku úrvalsdeildinni í augnablikinu, fjórum stigum á eftir toppliði FCK. Liðið varð danskur meistari á síðasta tímabili en þá var Eyjólfur Héðinsson, núverandi leikmaður Stjörnunnar, á mála hjá félaginu.
Midtjylland mætir meðal annars Manchester United í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar síðar í þessum mánuði.
Böðvar er uppalinn hjá FH en hann spilaði nítján leiki með Íslandsmeisturunum síðastliðið sumar og skoraði eitt mark.
Sam Tillen mun fylla skarð Böðvars í vinstri bakverðinum hjá FH en hann snéri aftur á síðasta tímabili eftir erfið meiðsli árið 2014.

Heimild: Heimasíða Midtjylland