Fotbolti.net
02.02.16 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson

Ikechukwu Uche til Malaga (Staðfest)

Ikechukwu Uche til Malaga (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Nígeríski sóknarmaðurinn Ikechukwu Uche verður hjá Malaga í spænsku deildinni út tímabilið.

Uche kemur á láni frá Tigres UANL í mexíkósku deildinni, en áður en hann fór til Mexíkó gerði Uche 33 mörk í 85 deildarleikjum fyrir Villarreal.
Uche er 32 ára gamall og hefur verið lykilmaður í nígeríska landsliðinu í nokkur ár, þar sem hann hefur gert 19 mörk í 46 leikjum.

Uche er þekktur fyrir að vera sterkur og snöggur og er mjög fjölhæfur þar sem hann getur leikið í öllum stöðum í sókninni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.