02.02.16 - 10:00
Ívan Guðjón Baldursson
Johnny Heitinga leggur skóna á hilluna (Staðfest)

Heitinga á 87 landsleiki að baki fyrir Holland.

Mynd: Getty Images

Hollenski varnarmaðurinn John Heitinga er búinn að leggja skóna á hilluna eftir 15 ár í atvinnumennsku.
Heitinga hóf ferilinn hjá Ajax og lék þar í sjö ár áður en hann fór til Atletico Madrid og svo til Everton.

„Ég áttaði mig á því í desember að nú væri kominn tími til að leggja skóna á hilluna,\" sagði Heitinga við vefsíðu Ajax.
„Ég ætlaði ekki að hætta fyrr en eftir tímabilið en ég mun alltaf hafa Ajax í hjarta mér og hlakka til næsta kafla í lífi mínu.\"
Heitinga er aðeins 32 ára gamall og kemur þessi tilkynning því nokkuð á óvart, en Heitinga gekk aftur til liðs við Ajax síðasta sumar og hefur aðeins komið við sögu í tveimur deildarleikjum á tímabilinu.