Fotbolti.net
02.02.16 - 09:15
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Levante fær Verdu frá Fiorentina (Staðfest)

Joan Verdu og Nenad Tomovic í leik með Fiorentina.

Joan Verdu og Nenad Tomovic í leik með Fiorentina.

Canon

Mynd: Getty Images

Spænska félagið Levante er búið að næla sér í miðjumanninn Joan Verdu frá Fiorentina.

Verdu er 32 ára gamall og hefur ekki tekist að brjóast inn í byrjunarlið Fiorentina á þeim stutta tíma sem hann hefur verið hjá félaginu.
Verdu er spænskur og gekk til liðs við Fiorentina í sumar, en hefur aðeins komið við sögu í fimm deildarleikjum.

„Joan Verdu er búinn að skrifa undir samning við Levante sem gildir út tímabilið,\" stendur í yfirlýsingu á vefsíðu Levante.

„Leikmaðurinn kemur frítt til félagsins eftir að hafa rift samningi sínum við Fiorentina.\"

Verdu skrifar undir sex mánaða samning við Levante og fær möguleika á að framlengja samninginn um eitt ár ef ákveðnum samningsskilyrðum er mætt.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.