02.02.16 - 11:05
Elvar Geir Magnússon
Thomas Nielsen í Silkeborg (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Markvörðurinn Thomas Nielsen sem lék með Víkingi í fyrra hefur skrifað undir samning við Silkeborg í Danmörku.
Silkeborg er í 5. sæti B-deildarinnar.
Silkeborg er í 5. sæti B-deildarinnar.
Nielsen æfði með félaginu til reynslu og fékk samning út tímabilið.
Víkingar fengu til sín Róbert Örn Óskarsson sem varið hefur mark FH undanfarin ár til að spila í markinu í stað Nielsen.
Í viðtali við heimasíðu Silkeborg segist Nielsen í skýjunum með að hafa fengið samning hjá félaginu og að hann sé ákveðinn í að leggja sig allan fram til að fá tækifæri í deildarleikjum.