02.02.16 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Tottenham búið að selja Veljkovic til Werder (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images

Milos Veljkovic er genginn til liðs við Werder Bremen í þýska boltanum og kostar hann félagið 500 þúsund pund.
Veljkovic er 20 ára gamall serbneskur varnarmaður sem getur einnig spilað á miðjunni.

Veljkovic hefur leikið 29 leiki fyrir yngri landslið Serbíu og 1 fyrir U16 lið Svisslendinga, en hann er fæddur í Sviss og alinn upp hjá FC Basel.
Samningur Veljkovic við Tottenham hefði runnið út næsta sumar og því gátu Aron Jóhannsson og félagar í Werder fengið hann á minni pening en ella.
„Við höfum verið að fylgjast með Milos í langan tíma og erum ánægðir með að hafa loksins tekist að klófesta hann. Þetta eru framtíðarkaup,\" sagði Thomas Eichin, yfirmaður íþróttamála hjá Werder.