02.02.22 - 11:12
Elvar Geir Magnússon
Aubameyang formlega orðinn leikmaður Barcelona (Staðfest)

Mynd: Barcelona

Mynd: Barcelona
Barcelona er búið að kynna Pierre-Emerick Aubameyang formlega sem nýjan leikmann félagsins. Hann kemur til félagsins á frjálsri sölu og skrifaði undir átján mánaða samning.
Barcelona staðfesti samninginn í morgun með myndbandi sem bar yfirskriftina 'Það er Auba tími'. Hann kemur á frjálsri sölu þar sem samningi hans við Arsenal var rift.
Barcelona staðfesti samninginn í morgun með myndbandi sem bar yfirskriftina 'Það er Auba tími'. Hann kemur á frjálsri sölu þar sem samningi hans við Arsenal var rift.
Aubameyang, sem er 32 ára, var sviptur fyrirliðabandi Arsenal í desember og látinn æfa einn vegna agabrota.
Hann var hjá félaginu í fjögur ár og skoraði 92 mörk í 163 leikjum fyrir félagið. Viðskilnaðurinn var þó á slæmum nótum. Arsenal er aðeins með tvær 'níur' í hópnum sínum eftir að hann fór; Alexandre Lacazette og Eddie Nketiah sem báðir verða samningslausir í sumar.
Barcelona reyndi á gluggadeginum að tryggja sér Aubameyang og um tíma virtist það runnið út í sandinn. En allt er gott sem endar vel og sóknarmaðurinn æfði í fyrsta sinn með félaginu í gær.
Aubameyang skrifaði á Instagram að hann muni alltaf geyma minningarnar frá Arsenal í hjarta sínu og segir það sárt að geta ekki kvatt almennilega.
Sjá einnig:
Líklegt byrjunarlið Barcelona eftir janúargluggann

It’s @Auba time 😎 pic.twitter.com/B8eHCnOzYZ
— FC Barcelona (@FCBarcelona) February 2, 2022
La Liga - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Barcelona | 12 | +35 | 33 |
| 2 | Real Madrid | 12 | +21 | 30 |
| 3 | Atletico Madrid | 12 | +13 | 28 |
| 4 | Betis | 12 | +5 | 26 |
| 5 | Real Sociedad | 12 | +1 | 22 |
| 6 | Sevilla | 12 | -2 | 18 |
| 7 | Athletic | 11 | +4 | 16 |
| 8 | Villarreal | 12 | +2 | 15 |
| 9 | Deportivo | 12 | +1 | 15 |
| 10 | Racing Santander | 12 | -13 | 14 |
| 11 | Celta | 12 | 0 | 13 |
| 12 | Alaves | 12 | -2 | 13 |
| 13 | Espanyol | 12 | -1 | 12 |
| 14 | Vallecano | 11 | -6 | 12 |
| 15 | Getafe | 12 | -10 | 12 |
| 16 | Osasuna | 12 | -11 | 12 |
| 17 | Levante | 12 | -5 | 11 |
| 18 | Elche | 12 | -6 | 10 |
| 19 | Valencia | 12 | -12 | 9 |
| 20 | Malaga | 12 | -14 | 5 |