Fotbolti.net
02.02.22 - 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Fram fær Ana Bral frá Sindra (Staðfest) - Erika framlengir

Leikmennirnir og Óskar Smári, annar af þjálfurum liðsins.

Leikmennirnir og Óskar Smári, annar af þjálfurum liðsins.

Canon

Mynd: Fram

Kvennaboltinn
Fram greinir frá því á Instagram að kvennalið félagsins hafi fengið Ana Bral (nf.) frá Sindra. Ana er frá Portúgal og gerði tveggja ára samning við Fram.

Áður hafði Ana leikið með Atlético CP og CF Benfica í heimalandinu, þar sem hún vann bæði portúgölsku deildina og bikarinn ásamt því að spila í undankeppni Meistaradeildarinnar. Ana er 25 ára gömul, gríðarlega vinnusamur miðjumaður með gott auga fyrir spili.
Þá var einnig greint frá því að fyrirliði liðsins, Erika Rún Heiðarsdóttir hefði gert nýjan tveggja ára samning við félagið. Erika er 21 árs gömul og spilar sem miðvörður. Hún er kraftmikil, hávær og mjög afgerandi leiðtogi á vellinum og utan hans. Erika gekk til liðs við félagið frá Aftureldingu fyrir síðasta tímabil og gegndi lykilhlutverki í góðum árangri síðasta árs.

„Hún var kjörin efnilegasti leikmaður liðsins á lokahófi knattspyrnudeildar og var einnig tilnefnd sem íþróttamaður Fram 2021," segir í tilkynningu Fram.

Fram spilar í 2. deild á komandi tímabili. Næsti leikur liðsins er gegn Þrótti í Reykjavíkurmótinu í kvöld.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.