02.02.22 - 16:05
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Haley þriðji bandaríski leikmaðurinn sem ÍBV fær (Staðfest)

Mynd: ÍBV

Mynd: ÍBV

Bandaríski leikmaðurinn Haley Thomas hefur skrifað undir samning við ÍBV og kemur til með að leika með liðinu í efstu deild í ár.
Haley kemur frá Weber State University í Bandaríkjunum.
„ÍBV bindur miklar vonir við Haley og er hún þriðji bandaríski leikmaðurinn sem skrifar undir við ÍBV fyrir komandi leiktíð," segir í frétt á heimasíðu ÍBV.

Hinar eru þær Sydney Carr og Ameera Hussen. Haley spilar oftast sem miðvörður.
Heimild: ÍBV

Sydney, Haley og Ameera

Mynd: ÍBV