02.02.22 - 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hrafn aftur í ÍR - Arnar og Ari mættir frá Víkingi (Staðfest)

Arnar, Arnar og Hrafn.

Mynd: ÍR

Arnar, Arnar og Hrafn.

Mynd: ÍR
Þeir Ari Jóhannesson, Arnar Ingason og Hrafn Hallgrímsson munu allir spila með ÍR í sumar. Hrafn og Arnar skrifa undir samning við félagið og Ari kemur á láni frá Víkingi Reykjavík út tímabilið.
„Hrafn kom til okkar sem lánsmaður frá Stjörnunni sumarið 2020 og lék þá lykilhlutverk í því að styrkja stöðu okkar í 2.deild. Hann hélt upp á Skaga í fyrra og lék sem lánsmaður hjá Kára alls níu leiki í 2.deild fyrir þá," segir í tilkynningu ÍR.

„Ég ræddi lengi við Hrafn um að ganga til liðs við okkur fyrir síðasta tímabil, því miður gekk það ekki eftir og hann fór uppá Skaga. Tækifæri til að fá hann til liðs við okkur myndaðist nú í byrjun árs og við erum ákaflega þakklátir Skagamönnum fyrir þeirra samstarf í ferlinu. Hrafn er efnilegur varnarmaður (2003) sem tekur vel tilsögn og ég hef trú á að geti vaxið með liðinu og lagt mikið af mörkum á komandi misserum," sagði Arnar Hallsson, þjálfari ÍR, þegar leikmennirnir voru kynntir.
Arnar Ingason kemur frá Víkingi, hann er fæddur árið 2002 og var lykilmaður í liði 2. flokks hjá Víkingi. „Ég hef þekkt til Arnars allt frá því í 4.flokki og þjálfaði Arnar stuttlega hjá Víkingi. Hann er kvikur leikmaður með góða tækni og er mjög klókur leikmaður. Arnar hefur næmt auga fyrir samleik og er mjög góður varnarlega 1v1. Hann er fljótur og áræðinn og ég er þess fullviss að hann muni vaxa með verkefninu sem framundan er," sagði Arnar þjálfari.
Ari er fæddur 2002 og skoraði tólf mörk í sextán leikjum fyrir 2. flokk Víking í fyrra og getur hann leyst margar stöður framarlega á vellinum. „Ari hefur allt aðra eiginleika en allir leikmenn okkar í meistaraflokknu. Ari er mjög góður á litlum svæðum með góða skottækni og er skemmtilega skapandi leikmaður. Hann mun geta hjálpað okkur mikið þegar andstæðingar okkar leggjast í djúpa blokk. Við erum mjög ánægðir að fá Ara til liðs við okkur og væntum þess að hann bæti liðið og bæti sig á meðan hann er hjá okkur.”