Fotbolti.net
02.03.14 - 07:30
Hafliði Breiðfjörð

Gígja Valgerður Harðardóttir í Val (Staðfest)

Gígja í leik með Þór/KA.

Gígja í leik með Þór/KA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Varnarmaðurinn Gígja Valgerður Harðardóttir er gengin í raðir Vals frá Þór/KA.
Gígja sem er 23 ára gömul spilaði sinn fyrsta leik með Val á föstudagskvöldið þegar hún kom inná sem varamaður í 2-2 jafntefli við Selfoss í Lengjubikarnum.

Hún hóf meistaraflokksferil sinn árið 2006 með Völsungi á Húsavík og psilaði þar út tímabilið 2009 í 1. deildinni.

Þá fór hún til Þór/KA og varð Íslandsmeistari með liðinu sumarið 2012 auk þess að komast í bikarúrstlialeikinn í fyrra.

Hún á að baki 129 leiki í deild og bikar og hefur skorað í þeim 14 mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.