Fotbolti.net
02.03.14 - 16:12
Magnús Már Einarsson

Joe Yoffe í Grindavík (Staðfest)

Joe Yoffe í Grindavík (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Enski framherjinn Joe Yoffe sem lék með Selfyssingum á síðasta tímabili hefur gengið til liðs við Grindvíkinga.

Yoffe æfði einnig með Víkingi R. á dögunum en hann mun nú leika með Grindaviík í 1. deildinni í sumar.
,,Búinn að skrifa undir samning hjá UMF Grindavik,\" skifaði Yoffe á Twitter í dag.

Yoffe skoraði tíu mörk í jafnmörgum deildar og bikarleikjum með Selfyssingum í fyrra en hann missti af síðari hluta móts vegna meiðsla.

Þessi 27 ára gamli leikmaður vakti mikla athygli í heimalandi sínu Englandi síðastliðið haust þegar hann hótaði að lögsækja FIFA vegna reglna um félagaskipti á milli landa.

Sjá einnig:
Leikmaður Selfoss íhugar að lögsækja FIFA
BBC fjallar um mál framherja Selfyssinga
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.