Fotbolti.net
02.03.16 - 09:27
Magnús Már Einarsson

Tobias Salquist í Fjölni á láni (Staðfest)

Tobias Salquist.

Tobias Salquist.

Canon

Mynd: Getty Images

Fjölnir hefur fengið danska miðvörðinn Tobias Salquist á láni frá Silkeborg út árið.
Hinn tvítugi Tobias ólst upp hjá Midtjylland en hefur leikið með Silkeborg undanfarin ár.

Tobias hefur reynslu af leikjum í dönsku 1.deildinni og úrvalsdeildinni með Silkeborg.

Fjölnismenn eru að vinna í að styrkja hópinn eftir að hafa misst lykilmenn frá því í fyrra. Daniel Ivanovski er aftur kominn í vörnina og miðjumennirnir Igor Jugovic og Martin Lund Pedersen hafa einnig samið við félagið.

Miðverðirnir Bergsveinn Ólafsson og Jonathan Neftali eru báðir farnir frá því í fyrra en Daniel og Tobias eru komnir til að fylla þeirra skörð.

Komnir:
Daniel Ivanovski
Igor Jugovic frá Króatíu
Jónatan Hróbjartsson frá ÍR
Martin Lund Pedersen frá Danmörku
Tobias Salquist frá Silkeborg á láni

Farnir:
Aron Sigurðarson til Tromsö
Bergsveinn Ólafsson í FH
Jonatan Neftali
Kennie Chopart í KR
Mark Magee til Stratford
Ragnar Leósson í HK
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.