Manchester City vann sinn 21 leik í röð í öllum keppnum í kvöld með góðum 4-1 sigri á Wolves í ensku úrvalsdeildinni.
Liðið er nú með fimmtán stiga forystu á toppi deildarinnar en grannar þeirra í Manchester United eiga leik á morgun gegn Crystal Palace.
City tókst að jafna met Arsenal í kvöld. Liðið hefur núna ekki lent undir í neinum af síðustu 19 leikjum þeirra í ensku úrvalsdeildinni. Þetta met getur liðið bætt um næstu helgi þegar það mætir United.
Liðið hefur nú unnið fimmtán leiki í röð í deildinni og er taplaust í síðustu 28 leikjum í öllum keppnum. Ótrúlegar tölur hjá Pep Guardiola og lærisveinum hans.
Man City have not trailed for a single minute in any of their last 19 Premier League games – equalling Arsenal’s record of 19 consecutive games without falling behind 😳 pic.twitter.com/Lr5dWWCZ2x
— ESPN FC (@ESPNFC) March 2, 2021
Athugasemdir