Fotbolti.net
02.03.22 - 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Arnór Snær færir sig frá Bodö/Glimt til Sandefjord (Staðfest)

Arnór Snær Guðmundsson.

Arnór Snær Guðmundsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnór Snær Guðmundsson er kominn með nýtt starf í Noregi. Hann færir sig frá Bodö/Glimt til Sandefjord.
Sem leikmaður, þá spilaði Arnór með Aftureldingu og ÍA á sínum ferli. Á síðasta ári var hann aðstoðar- og styrktarþjálfari hjá ÍA áður en hann hélt til Noregs.

Arnór hefur verið að afla sér menntunar í íþróttafræði og íþróttavísindum.

Hjá Bodö/Glimt hefur hann starfað með yngri leikmönnum félagsins, ásamt því að vinna einnig eitthvað með leikmönnum aðalliðsins hjá sterkasta félagsliði Noregi. Hjá Sandefjord kemur hann með að einbeita aðallega sér að aðalliðinu.

„Að vinna 100 prósent fyrir félag í norsku úrvalsdeildinni hljómar eins og draumur," segir Arnór.

Sandefjord hafnaði í tíunda sæti norsku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð. Viðar Ari Jónsson var leikmaður félagsins á síðustu leiktíð en hann var að færa sig um set til Ungverjalands og er núna orðinn leikmaður Honved.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.