Fotbolti.net
02.03.22 - 12:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Guðmundur Steinn samdi við Würzburger (Staðfest)

Guðmundur Steinn samdi við Würzburger (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðmundur Steinn Hafsteinsson gekk fyrr á þessu ári í raðir Würzburger FV, Würzburger Fußball-Verein 04, í Þýskalandi. Samkvæmt Transfermarkt er hann á samningi sem gildir út tímabilið, fram á sumarið.

Guðmundur Steinn er 32 ára framherji sem spilaði með Fylki hluta af síðasta sumri. Hann hafði áður spilað með KA, Stjörnunni, ÍBV, Fram, Víkingi Ólafsvík, HK og Val á Íslandi.
Würzburger er þriðja þýska félagið sem Guðmundur Steinn semur við því fyrri hluta ársins 2020 lék hann með RW Koblenz og í fyrra var hann á mála hjá TSV Abtswind.

Würzburger spilar í Bayernliga Nord sem er fimmta efsta stig í þýska boltanum. Würzburg er miðsvæðis í Þýskalandi, austan við Frankfort og norðan við Stuttgart.

Liðið er í 12. sæti af fimmtán liðum í deildinni og spilaði sinn fyrsta leik eftir vetrarfrí á dögunum. Næsti leikur liðsins er svo gegn Eintracht Bamberg á laugardag.

Fótbolti.net ræddi við Guðmund Stein í dag og birtist viðtal við leikmanninn seinna í dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.