02.03.22 - 18:26
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guendouzi kemur ekki aftur til Arsenal (Staðfest)

Kemur ekki aftur.

Mynd: Getty Images

Kemur ekki aftur.

Mynd: Getty Images
Miðjumaðurin Matteo Guendouzi verður áfram leikmaður Marseille að þessu tímabili loknu.
Síðasta sumar var Guendouzi lánaður frá Arsenal til franska félagsins. Ákvæði var í lánssamningnum um að Marseille þyrfti að kaupa hann ef ákveðin skilyrði yrðu uppfyllt.
Núna þegar hann er búinn að spila 38 leiki fyrir Marseille, þá er búið að uppfylla þau skilyrði. Hann snýr því ekki aftur til Arsenal eftir tímabilið.
Hann er búinn að skrifa undir samning til 2025 við Marseille.
Guendouzi, sem er 22 ára gamall, kom til Arsenal frá Lorient árið 2018. Hann spilaði alls 82 leiki fyrir Arsenal, en náði ekki alveg að slá í gegn í London.