Fotbolti.net
02.03.22 - 20:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Kwame Quee til Najran SC (Staðfest)

Kwame í bikarúrslitaleiknum með Víkingum á síðasta ári.

Kwame í bikarúrslitaleiknum með Víkingum á síðasta ári.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kantmaðurinn Kwame Quee mun ekki leika áfram á Íslandi. Hann er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við Najran SC í Sádí-Arabíu.
Kwame skrifar undir tveggja ára samning við félagið, sem leikur í næst efstu deild þar í landi. Fótbolti.net greindi fyrst frá skiptunum í gær.

Kwame kom fyrst til Íslands árið 2017 þegar hann samdi við Víking Ólafsvík þar sem hann lék tvö tímabil áður en hann skrifaði undir hjá Breiðabliki.

Hann fór síðan á láni í Víking Reykjavík síðari hluta tímabilsins 2020 og skrifaði í kjölfarið síðan undir eins árs samning við félagið. Hann varð Íslands- og bikarmeistari með Víkingi síðasta sumar.

Kwame, sem er 25 ára gamall, lék með landsliði Síerra Leóne í Afríkukeppninni í vetur. Hann er búinn að kveðja Ísland, í bili allavega.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.