Fotbolti.net
02.03.22 - 10:07
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Malmö kaupir Ágúst Orra (Staðfest) - Risastórt félag

Á U17 æfingu síðasta hausst

Á U17 æfingu síðasta hausst

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Malmö hefur tilkynnt að félagið hafi fest kaup á Ágústi Orra Þorsteinssyni. Ágúst Orri kemur til sænsku meistaranna frá Breiðabliki.

Hann er sautján ára gamall miðjumaður sem æfir og spilar með U19 ára liði félagsins til að byrja með.
Ágúst Orri er unglingalandsliðsmaður sem skrifar undir þriggja ára samning við Malmö.

„Hann er mjög hæfileikaríkur og ákveðinn ungur leikmaður sem skilur leikinn vel. Við vonumst til að þróa hann upp í að verða leikmaður fyrir aðalliðið okkar," Andreas Georgsson, yfirmaður íþróttamála hjá Malmö.

„Það var góð tilfinning að æfa í dag. Allir hafa tekið mér vel og félagið er miklu stærra en ég hélt fyrst. Það er risastórt. Strákarnir sem ég spila með eru mjög góðir. Markmiðið er að spila fyrir framan áhorfendur á Eleda leikvanginum," sagði Ágúst.

Hann lék einn leik með Breiðabliki á síðasta tímabili og á að baki fimm leiki fyrir U17 landsliðið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.