02.04.13 - 17:58
Elvar Geir Magnússon
David James búinn að skrifa undir hjá ÍBV (Staðfest)
Viðtöl við James og Hermann Hreiðarsson koma inn í kvöld

David James skrifar undir samninginn við ÍBV í höfuðstöðvum Coca Cola, Vífilfelli í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

David James skrifar undir samninginn við ÍBV í höfuðstöðvum Coca Cola, Vífilfelli í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Markvörðurinn David James skrifaði formlega undir samning við ÍBV í höfuðstöðvum Vífilfells rétt áðan. Mun hann vera spilandi aðstoðarþjálfari liðsins á komandi tímabili.
James þekkir Hermann Hreiðarsson þjálfara ÍBV vel en þeir spiluðu saman hjá Portsmouth frá 2007-2010.
James hefur í vetur leikið 19 leiki með Bournemouth í ensku C-deildinni.
James hefur einnig leikið með Liverpool, Watford, Aston Villa, West Ham, Manchester City og Bristol á ferli sínum auk Bournemouth. James lék einnig 53 landsleiki með Englendingum frá 1997-2010 og er eitt allra stærsta nafn, ef ekki það stærsta, sem hefur gengið til liðs við félag á Íslandi.
Viðtöl við Hermann og James koma inn á síðuna á eftir.