Fotbolti.net
02.04.26 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Í samstarfi við styrktaraðila

Ísland í dag - Meistarar meistaranna og fyrsti leikur í 32-liða úrslitum bikarsins

Breiðablik og FH mætast í meistarar meistaranna

Breiðablik og FH mætast í meistarar meistaranna

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Breiðablik og FH mætast í meistarar meistaranna í kvennaflokki klukkan 14:00 í dag en spilað er á Kópavogsvelli. Þá hefjast 32-liða úrslit Mjólkurbikars karla.
Breiðablik varð Íslands- og bikarmeistari hjá konunum og mun því mæta FH sem hafnaði í öðru sæti Bestu deildarinnar og komst í úrslit bikarsins.

Blikar komust í þennan eftirsótta leik á síðasta ári en tapaði fyrir Val, 1-0.

Í Meistarakeppni kvenna er keppt um Svanfríðarbikarinn til minningar um Svanfríði Guðjónsdóttur. Svanfríður vann ötullega að uppbyggingu knattspyrnu kvenna á Íslandi. Hún var fyrsta konan sem kjörin var í stjórn Knattspyrnusambands Íslands en hún hafði starfað í kvennanefnd KSÍ áður en hún var kosin í stjórn.

Á sama tíma mun fyrsti leikurinn í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla fara fram er Lengjubikarsmeistarar Fylkis taka á móti KFA á tekkVellinum í Árbæ.

Leikir dagsins:

Mjólkurbikar karla
14:00 Fylkir-KFA (tekk VÖLLURINN)

Meistarakeppni kvenna
14:00 Breiðablik-FH (Kópavogsvöllur)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.