02.05.13 - 10:00
Hafliði Breiðfjörð
Andrés Már gengur til liðs við Fylki (Staðfest)

Andrés Már í leik með Fylki.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Andrés Már í leik með Fylki.

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Norska félagið Haugesund staðfesti á vef sínum í dag að Andrés Már Jóhannesson sé á leið til Fylkis.
Á vef norska félagsins segir að Andrés hafi verði meiddur í nokkurn tíma núna og nokkrar vikur séu þar til hann geti spilaðð að nýju.
Því hafi félagið samþykkt að lána Andrés Má til Fylkis frá 1. maí - 15. júlí næstkomandi.
Andrés Már er uppalinn í Fylki og fór þaðan til FK Haugesund fyrir síðustu leiktíð.
Á vef Haugesund er haft eftir Asbjörn Helgeland stjóra liðsins að félagið vonist til þess að Andrés nái skjótum bata svo Fylkir geti gefið honum mikilvægan spilatíma.
Andrés Már sem er 25 ára gamall spilaði 98 leiki fyrir Fylki og skoraði í þeim 8 mörk á árunum 2005-2011.

Heimild: Vefur FK Haugesund