02.05.13 - 11:16
Hafliði Breiðfjörð
Hafsteinn Briem í Hauka (Staðfest)

Hafsteinn í leik með Val í Futsal mótinu í janúar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hafsteinn Briem er genginn til liðs við Hauka frá Val og hefur þegar fengið félagaskipti með sínu nýja félagi.
Hafsteinn er 21 árs gamall varnar og miðjumaður en hann er uppalinn í HK.
Í síðasta mánuði varð ljóst að hann væri á förum frá Val eftir að félagið tók tilboði Selfossi í hann. Haukar sýndu líka áhuga og hann valdi að fara þangað.
Hafsteinn gekk til liðs við Val fyrir síðasta tímabil en þá settu meiðsli strik í reikninginn og hann spilaði einungis átta leiki í Pepsi-deildinni í fyrra.
Haukar hafa þá fengið tíu leikmenn til liðs við sig frá síðustu leiktíð. Áður komu Andri Steinn Birgisson frá Víkingi, Arnar Aðalgeirsson frá AGF, Ásgeir Þór Ingólfsson frá Val, Hafþór Þrastarson frá FH, Hilmar Geir Eiðsson frá Keflavík, Hilmar Rafn Emilsson frá Val, Helgi Valur Pálsson frá FH, Sigmar Ingi Sigurðarson frá Breiðabliki og Viktor Smári Hafsteinsson frá Keflavík (á láni) .
Átta leikmenn eru farnir frá þeim, Árni Vilhjálmsson í Breiðablik (var á láni), Benis Krasniqi til Noregs, Daði Lárusson í FH, Guðmundur Viðar Mete í Aftureldingu, Hróar Sigurðsson í KR (var á láni), Sverrir Garðarsson í Fylki, Viktor Smári Segatta í ÍR og Viktor Unnar Illugason í Breiðablik (var á láni).