02.05.13 - 14:30
Magnús Már Einarsson
Höttur fær þrjá erlenda leikmenn (Staðfest)

Mynd: Björn Ingvarsson

Mynd: Björn Ingvarsson
Höttur hefur fengið fínan liðsstyrk fyrir átökin í annarri deildinni í sumar.
Á dögunum kom enski miðjumaðurinn Jonathan Taylor til félagsins en hann spilaði með Magna Grenivík árið 2011.
Höttur hefur einnig fengið bandaríska markvörðinn Scott Goodwin til liðs við sig sem og enska varnarmanninn Joe Lamlough en þeir koma til landsins næstkomandi sunnudag.

Höttur gæti einnig fengið frekari liðsstyrk áður en keppni í 2. deild hefst eftir rúma viku en kantmaðurinn Bragi Þór Kristinsson úr Fjölni hefur æft með liðinu að undanförnu og allar líkur eru á að hann gangi til liðs við félagið.