02.05.14 - 11:00
Magnús Már Einarsson
Hallur með félagaskipti númer 31 (Staðfest)

Hallur Kristján Ásgeirsson.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Hallur Kristján Ásgeirsson.

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Hallur Kristján Ásgeirsson heldur áfram að smyrja ofan á Íslandsmetið í félagaskiptum en hann hefur skipt um félag í 31. skipti á ferlinum.
Hallur hefur gengið til liðs við Vængi Júpíters í 4. deildinni en hann kemur til félagsins frá Ými.
Hallur hefur gengið til liðs við Vængi Júpíters í 4. deildinni en hann kemur til félagsins frá Ými.
Vængir Júpíters ætla að leika í 4. deildinni á nýjan leik í sumar en Grafarvogsliðið hefur fengið nokkra leikmenn til liðs við sig undanfarna daga.
Þar má meðal annars nefna Davíð Þór Rúnarsson og Ómar Hákonarson fyrrum leikmenn Fjölnis.
Varnarmaðurinn Dusan Ivkovic er einnig kominn til félagsins frá Gróttu.
Þar má meðal annars nefna Davíð Þór Rúnarsson og Ómar Hákonarson fyrrum leikmenn Fjölnis.
Varnarmaðurinn Dusan Ivkovic er einnig kominn til félagsins frá Gróttu.
