02.05.14 - 14:06
Magnús Már Einarsson
Tomislav Misura í Grindavík (Staðfest)

Tomislav Misura.

Mynd: Getty Images

Tomislav Misura.

Mynd: Getty Images
Grindvíkingar hafa fengið framherjann Tomislav Misura til liðs við sig en þetta staðfesti Milan Stefán Jankovic þjálfari liðsins í samtali við Fótbolta.net í dag.
Tomislav er 32 ára gamall Slóveni sem hefur komið víða við á ferli sínum en hann hefur meðal annars leikið með Newcastle Jets í Ástralíu, Admira Wacker í Austurríki, FC Gossau í Sviss sem og félögum í heimalandinu.
Þá lék Tomislav með Neftchi Baku frá Azerbaijan árin 2005 og 2006.
Hjá Neftchi skoraði hann tvö mörk í leik gegn FH-ingum í Meistaradeildinni árið 2005.
Grindvíkingar hefja leik í 1. deildinni þann 10. maí þegar liðið mætir Leikni R.