Fotbolti.net
02.05.17 - 21:00
Stefnir Stefánsson

Ólafur Hrafn á láni til HK (Staðfest)

Ólafur færir sig um set innan Kópavogs

Ólafur færir sig um set innan Kópavogs

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hinn 20 ára gamli Ólafur Hrafn Kristjánsson leikmaður Breiðabliks hefur gengið til liðs við HK á láni en Breiðablik greindi frá þessu á heimasíðu sinni nú í kvöld.

Ólafur varð Íslandsmeistari með 2.flokki Breiðabliks síðustu tvö ár en hann hefur æft og spilað með meistaraflokki Breiðabliks í vetur. Þá var hann lánaður um mitt mót í fyrra til Þórs á Akureyri þar sem hann lék 10 leiki í Inkasso-deildinni.

Ólafur á að baki 12 leiki fyrir unglingalandslið Íslands og hefur hann skorað eitt mark í þeim leikjum. Hann á 6 leiki að baki með meistaraflokki Breiðabliks.
HK er spáð 9. sæti í Inkasso-deildinni í sumar en liðið mætir Fram í fyrstu umferðinni á föstudagskvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.