Fotbolti.net
02.05.17 - 17:46
Magnús Már Einarsson

Sindri Scheving í Hauka á láni (Staðfest)

Sindri Scheving.

Sindri Scheving.

Canon

Mynd: Valur

Haukar hafa fengið vinstri bakvörðinn unga Sindra Scheving á láni frá Val.

Sindri kom aftur til Vals í vetur eftir að hafa verið í þrjú ár í unglingaliði Reading á Englandi.
Sindri er 19 ára gamall en hann var í U21 árs landsliðshópnum gegn Georgíu í mars síðastliðnum.

Hann var ekki í leikmannahópi Vals gegn Víkingi Ólafsvík í fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar um helgina.

Andri Fannar Helgason hefur einnig fengið leikheimild með Haukum en hann er markmannsþjálfari liðsins. Andri verður varamarkvörður á næstunni þar sem markvörðurinn Magnús Kristófer Anderson er farinn í Ægi á láni.

Andri lék síðast með KV árið 2010 en hann á einnig leiki að baki í 1. deild með Þrótti. Trausti Sigurbjörnsson er aðalmarkvörður Hauka en hann kom til félagsins frá Þrótti í vetur.

Haukum er spáð 8. sæti í Inkasso-deildinni í sumar en þeir mæta Þrótti R. í fyrstu umferðinni á laugardag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.