Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 02. maí 2021 14:48
Victor Pálsson
Leik Man Utd og Liverpool frestað - Spilað í kvöld?
Mynd: Getty Images
Leik Manchester United og Liverpool verður frestað um óákveðinn tíma vegna mótmæla á Old Trafford.

Sky Sports greinir frá þessu nú rétt í þessu en stuðningsmenn Man Utd brutust inn á völl liðsins fyrir leikinn.

Greint er frá því að það taki allt að tvo klukkutíma að þrífa eftir stuðningsmenn á vellinum en leikurinn átti að hefjast 15:30.

Ljóst er að hann mun ekki fara fram á þeim tíma en hvenær upphafs flautið verður er ekki víst.

Möguleiki er á að leikurinn verði spilaður í kvöld eða verði færður á annan dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner