sun 02. maí 2021 16:36
Victor Pálsson
Leikur Man Utd og Liverpool fer ekki fram í dag
Mynd: EPA
Leikur Manchester United og Liverpool mun ekki fara fram í dag en leikar áttu að hefjast klukkan 15:30.

Fyrr í dag brutust stuðningsmenn Man Utd inn á Old Trafford og mótmæltu þar eigendum félagsins.

Það tók dágóðan tíma að fjarlægja stuðningsmennina og var ákveðið að leiknum yrði frestað um óákveðinn tíma.

Mótmælin standa enn yfir fyrir utan Old Trafford og voru liðin enn ekki búin að ferðast á völlinn.

Talað var um að leikurinn gæti farið fram klukkan 18:30 í kvöld en nú er búið að komast að annarri niðurstöðu.

Viðureignin verður ekki spiluð á þessum fína sunnudegi og verður ákvörðun um framhaldið tekin síðar.

Vegna öryggisástæðna hefur leiknum verið frestað en sú ákvörðun var tekin í samvinnu með lögreglu.

Meira:
Mikil mótmæli á Old Trafford - Stuðningsmenn komnir á grasið
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner