Rashford, Tudor, Glasner, Iraola, Höjlund, Goretzka, Bastoni og fleiri góðir í slúðri dagsins
Óskar Hrafn: Forréttindi að þjálfa þessa tvo ungu menn
Jökull: Eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
„Töluvert síðan að hópurinn var klár en hann var ekki að spila leikinn í dag"
Siggi Höskulds: Eins og að vera mættur á Pollamótið aftur
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Erfitt að fá mínútur hjá Víkingi - „Vonandi get ég haldið þessu áfram“
Nýliðinn ósáttur þrátt fyrir stóra sviðið: „Við hefðum getað gert aðeins betur“
Alexandra: „Leyfðum þeim að krossa full auðveldlega"
Stigalausar og markalausar - „Auðvitað dreymir mann alltaf um eitthvað“
Fyrirliðinn sér bjarta framtíð: „Hún er á svipuðum aldri og ég þegar ég kom fyrst inn“
Fyrrum leikmaður ÍBV og landsliðsmarkvörður Englands um leikinn
Vilja Fanneyju og Guðrúnu með á eyðieyjuna
Glódís fyrir leikinn gegn Englandi: „Mætum með kassann úti“
Karólína Lea: Þurfum að passa vinkonu mína, hún er heit
Steini: Þurfum að gæta Russo vel inn í boxi
Diljá Ýr: Tek mínu hlutverki og reyni að gera það sem best
Sædís Rún: Auðvitað langar manni að spila á hærra leveli
María um fyrsta landsleikinn: Sérstaklega gaman að fá að spila á móti heimsmeisturunum
   sun 02. maí 2021 22:35
Arnar Laufdal Arnarsson
Óskar Örn: Við byggjum ofan á þetta
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við vinnum bara góðan 2-0 sigur, ég man ekki eftir því að þeir fengu einhver teljandi færi í þessum leik þannig að þetta var bara þéttur sigur hjá okkur," sagði Óskar Örn Hauksson fyrirliði KR eftir öruggan sigur á Breiðablik í fyrsta leik Pepsi-Max deildarinnar.

Lestu um leikinn: Breiðablik 0 -  2 KR

Var þetta nánast fullkomin frammistaða hjá KR?

„Nei ég myndi ekki segja það, við getum gert margt betur, við hefðum getað klárað þennan leik fyrr með þriðja markinu en varnarlega bara mjög flott og við bara byggjum ofan á þetta."

Vissi Óskar að hann væri að skora 18. tímabilið í röð í efstu deild?

„Já, það er alltaf verið að telja þetta þannig þetta er ekki flókið í fyrra var það sautjánda núna er það átjánda, ég var reyndar ekkert að pæla í þessu en þú bara minntir mig á þetta, maður er bara að æfa vel og borða vel þannig ég held að það sé bara lykillinn."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner