Einn af fáum leikjum á Íslandi þar sem heimurinn nemur staðar

Valur tekur á móti KR annað kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR-ingar hafa unnið alla fjóra leiki sína til þessa.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Már Helgason og Jói Skúli.

Mynd: Kári Snorrason

Sindri Snær hér fyrir miðju.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Snorri Sigurðsson, stuðningsmaður KR.

Mynd: Úr einkasafni

Valur Gunnarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur tekur á móti KR annað kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þessir leikir eru ávallt sérstakir og hvað þá núna þegar báðum liðum gengur vel. Til að hita upp fyrir leikinn heyrðum við í stuðningsmönnum beggja liða og svo var einnig haft samband við hlutlausan sérfræðing sem skilaði af sér faglegri spá.

Óskar Hrafn: Hef lítinn sem engan smekk fyrir Val
1. Hvernig finnst þér byrjunin hafa verið hjá þínum mönnum?
Fyrir utan að detta út úr bikar hefur þetta heilt yfir verið flott og mun sennilega bara verða betra eftir því sem líður á.
2. Hvernig er tilfinningin fyrir leiknum?
Alltaf mikill spenningur og stress hjá stuðningsmönnum fyrir Valur KR sama hvernig staðan er í deildinni, enda einn af fáum leikjum á Íslandi þar sem heimurinn nemur staðar og öll Reykjavík er undir.
3. Þín faglega spá?
Valur vinnur 4-2. Tryggvi skorar tvö, Hólmar eitt og Dagur Orri eitt.
Sindri Snær Jensson, stuðningsmaður KR
1. Hvernig finnst þér byrjunin hafa verið hjá þínum mönnum?
Frábær byrjun. Mikil jákvæðni í Vesturbænum og mikilvægt að hafa fengið heimaleiki á Meistaravöllum en ekki á heimavöllum annarra liða líkt og undanfarin ár. Það er geggjað að sjá uppalda KR leikmenn blómstra heima hjá sér, ég náði meira að segja að spila með nokkrum þeirra. Öllum KR-ingum líður vel með Óskar við stjórnvölinn og vonandi getum við haldið honum sem lengst.
2. Hvernig er tilfinningin fyrir leiknum?
Þetta verður hörkuleikur eins og allir í Bestu deildinni. Það er gaman að verða ástfanginn af íslenskum fótbolta aftur sem stuðningsmaður, þetta er ein skemmtilegasta deild í heimi. Valsmenn hafa byrjað vel þvert á spár og væntingar margra. Ég held að þetta verði markaleikur fyrir eins og flestir í deild þeirra bestu. Opinn og skemmtilegur á laugardagskvöldi.
3. Þín faglega spá?
Fagleg spá: 2-4. Eiður Gauti skorar tvö mörk
Jóhann Már Helgason, stuðningsmaður Vals
1. Hvernig finnst þér byrjunin hafa verið hjá þínum mönnum?
Vonum framar! Leikurinn gegn KR í bikarnum var ákveðið sjokk og þessi leikur gegn Þór átti aldrei að tapast en siðan þá hefur leikur liðsins snar batnað og þrír sigurleikir í röð gera þessa byrjun bara mjög flotta. Það þarf líka að hafa í huga að liðið á Pedersen, Samúel Kára, Nakkim og Jónatan Inga inni.
2. Hvernig er tilfinningin fyrir leiknum?
Hun er góð, KR-ingar fljúga vissulega með himinskautum en þessi leikur er fyrsta alvöru prófið þeirra. Valur þarf að nálgast leikinn á sínum styrkleikum að passa að spila ekki leikinn upp í hendurnar á KR-ingum. Það er til handrit að því hvernig á að vinna KR og Hemmi þarf að fylgja því handriti og nýta þær gloppur sem myndast í leik þeirra.
3. Þín faglega spá?
Síðast þegar KR mættu á Hlíðarenda voru þeir rassskelltir 6-1, þá spiluðu Valsmenn á sínum styrkleikum og þvinguðu KR í að gera mistök. Spái núna solid 3-1 sigri. Adam með eitt og Tryggvi með tvö.
Snorri Sigurðsson, stuðningsmaður KR
1. Hvernig finnst þér byrjunin hafa verið hjá þínum mönnum?
Þetta hefur ekki verið neitt annað en skemmtilegt. Remontada í fyrsta leik, fullt af mörkum og góð stemming. Fengið á okkur nokkur ódýr mörk en hefur ekki kostað okkur enn sem komið, ólíkt síðasta tímabili.
2. Hvernig er tilfinningin fyrir leiknum?
Tilhlökkun. Laugardagskvöld, árgangamót og dagskrá allan daginn á Meistaravöllum, ekki víst að þetta klikki.
3. Þín faglega spá?
2-4 hlýtur að vera faglega spáin fyrir þennan leik. Stefán Árni skorar að minnsta kosti tvö mörk.
Valur Gunnarsson, hlutlaus sérfræðingur
Útisigur Vals gegn Stjörnunni í síðustu umferð gerir þennan leik helvíti spennandi. Ég fór á bikarleikinn um daginn þar sem mér fannst annað liðið mikið betra en hitt (KR) og heilt yfir hef ég ekki séð mikla breytingu frá þeim leik. Svo kom þessi Stjörnuleikur hjá Val sem gerir þetta mun erfiðara. KR að glíma við einhver meiðsli en mér finnst KR betra lið í dag og ég spái þeim sigri, 1-3.

KR-ingar hafa unnið alla fjóra leiki sína til þessa.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Már Helgason og Jói Skúli.

Mynd: Kári Snorrason

Sindri Snær hér fyrir miðju.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Snorri Sigurðsson, stuðningsmaður KR.

Mynd: Úr einkasafni

Valur Gunnarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð









