02.06.13 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Ernesto Valverde yfirgefur Valencia (Staðfest)

Ernesto Valverde.

Mynd: Getty Images

Ernesto Valverde.

Mynd: Getty Images
Ernesto Valverde þjálfari Valencia á Spáni tilkynnti í gærkvöldi að hann sé að hætta hjá félaginu.
Hann tilkynnti þetta eftir 4-3 tap gegn Sevilla í lokaleik spænsku deildarinnar í gær en þar með var ljóst að liðið endaði í 5. sæti spænsku deildarinnar og kemst ekki í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð.
Hann sagðist hafa tekið ákvörðunina fyrir nokkru síðan en beðið með að opinbera hana til að halda áfram baráttuanda í liðinu.
Valverde kom til félagsins í desember og samdi út tímabilið. Félagið hefur átt í fjárhagskröggum og er búið að skipta um forseta.
Miroslav Djukic fyrrverandi leikmaður Valencia stýrði Valladolid í síðasta leik sínum í dag og er talinn líklegur til að taka við Valencia.

Heimild: AP