02.06.14 - 17:24
Alexander Freyr Tamimi
Ciro Immobile til Borussia Dortmund (Staðfest)

Immobile ásamt Jurgen Klopp, þjálfara Dortmund.

Mynd: Twitter síða Dortmund

Immobile ásamt Jurgen Klopp, þjálfara Dortmund.

Mynd: Twitter síða Dortmund

Borussia Dortmund hefur staðfest kaupin á framherjanum Ciro Immobile, en hann kemur til félagsins frá Torino á Ítalíu.
Ítalski landsliðsmaðurinn var markahæstur í Seríu A á nýafstaðinni leiktíð, en hann skoraði 22 mörk fyrir Torino. Hann var í sameiginlegri eigu Torino og Juventus.
Ítalski landsliðsmaðurinn var markahæstur í Seríu A á nýafstaðinni leiktíð, en hann skoraði 22 mörk fyrir Torino. Hann var í sameiginlegri eigu Torino og Juventus.
Dortmund staðfesti kaupin rétt í þessu á Twitter síðu sinni, en Immobile hafði sjálfur sagt að allt væri frágengið.
Talið er að Dortmund hafi greitt 18 milljónir evra fyrir framherjann.
Talið er að Dortmund hafi greitt 18 milljónir evra fyrir framherjann.
