Fotbolti.net
02.06.14 - 10:13
Magnús Már Einarsson

Rickie Lambert til Liverpool (Staðfest)

Rickie Lambert til Liverpool (Staðfest)
Canon

Mynd: Vefur Liverpool

Liverpool hefur keypt framherjann Rickie Lambert frá Southampton.

Talið er að kaupverðið sé í kringum fjórar milljónir punda en Lambert skrifaði undir samning við Liverpool eftir að hafa staðist læknisskoðun um helgina.
Hinn 32 ára gamli Lambert var á mála hjá Liverpool á sínum yngri árum.

,,Ég trúi þessu ekki. Ég hef elskað þetta félag alla mína ævi. Ég fór fyrir 17 árum en ást mín á félaginu hefur aldrei hætt,\" sagði Lambert.

,,Það hefur alltaf verið draumur minn að spila fyrir Liverpool en ég hélt að tækifærið væri farið. Ég hélt að þetta tækifæri myndi ekki koma.\"

Lambert hefur spilað með Macclesfield, Rochdale, Stockport og Bristol Rovers en hann gekk í raðir Southampton árið 2009 þegar liðið var í ensku C-deildinni.

Heimild: Heimasíða Liverpool

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.