Fotbolti.net
02.06.14 - 14:34
Elvar Geir Magnússon

Villa fyrsti leikmaður í sögu New York City FC (Staðfest)

Villa hress og kátur á fréttamannafundi.

Villa hress og kátur á fréttamannafundi.

Canon

Mynd: Getty Images

New York City FC kynnti í dag fyrsta leikmann í sögu félagsins en það er spænski sóknarmaðurinn David Villa.

Spænski framherjinn kemur frá Atletico Madrid sem vann spænska meistaratitilinn með glæsibrag á liðnu tímabili.
Villa hafði úr nokkrum tilboðum að velja en endaði með því að semja við bandaríska félagið sem er að hluta til í eigu Manchester City og New York Yankees. Hann mun æfa með City í sumar þar sem hann er fyrsti leikmaður New York City.

Villa er markahæsti leikmaður í sögu spænska landsliðsins.

Orðrómur er í gangi um að Frank Lampard gæti einnig verið á leið til New York en báðir leikmenn verða í eldlínunni á HM í Brasilíu í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.