Fotbolti.net
02.06.20 - 09:30
Magnús Már Einarsson

Klopp: Ótrúlegt hvað ég hef saknað fótboltans

Jurgen Klopp.

Jurgen Klopp.

Canon

Mynd: Getty Images

„Ég hef saknað fótboltans svo mikið að það er ótrúlegt. Ég veit þetta er ekki mikilvægasti hlutur í heimi en þetta er ástríða mín. Ég vona að fólki hlakki til því að okkur hlakka til," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool í viðtali við BBC í dag.
Rúmar tvær vikur eru í að keppni í ensku úrvalsdeildinni hefjist á ný eftir að hún var stöðvuð 13. mars vegna kórónaveirunnar. Liverpool er með 25 stiga forskot og þarf tvo sigra í viðbót til að gulltryggja titilinn í fyrsta skipti í 30 ár.

„Það er gaman að hugsa um það en við erum ekki meistarar ennþá og við vitum það. Við vitum að við erum nálægt þessu en þetta er ekki klárt. Það eru 27 stig í pottinum og við munum reyna allt sem við getum til að ná í þau öll."

„Við erum ekki ennþá meistarar. Við eigum fótboltaleiki eftir og við verðum að vinna þá. Við viljum ekki hætta að vinna eftir tvo leiki eða hvað það er. Úrslitin eru ekki skrifuð í skýin, við verðum að leggja hart að okkur."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.