Igli Tare, yfirmaður íþróttamála hjá Lazio, telur sig vera búinn að finna næsta Sergej Milinkovic-Savic.
Milinkovic-Savic er 25 ára gamall og hefur gert frábæra hluti á fimm árum hjá Lazio. Hann er eftirsóttur af stórliðum víða um Evrópu en er samningsbundinn Lazio til 2024.
Savic er metinn á rúmlega 60 milljónir evra en Lazio vill ekki selja hann fyrir minna en 100 milljónir. Í samtali við Sky Sport Italia var Tare spurður út í mögulegan arftaka Milinkovic-Savic.
„Við erum búnir að finna leikmann en ég mun ekki segja ykkur nafnið. Fyrr mun ég drepa mig," svaraði Tare.
Lazio hefur reynst spútnik lið tímabilsins í Serie A og er í harðri titilbaráttu við Juventus sem hefur unnið deildina átta ár í röð.
Athugasemdir