Fotbolti.net
02.06.22 - 16:48
Elvar Geir Magnússon

Hlozek til Leverkusen (Staðfest)

Hlozek til Leverkusen (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Þýska félagið Bayer Leverkuson hefur tilkynnt um kaup á tékkneska ungstirninu Adam Hlozek sem kemur frá Sparta Prag.

Hlozek er hæfileikaríkur sóknarmaður en hann er keyptur á 30 milljónir punda ásamt árangurstengdum greiðslum. Þá fær Sparta Prag 30% af næstu sölu á leikmanninum.
Sevilla reyndi einnig að fá Hlozek sem valdi hinsvegar að ganga í raðir Bayer Leverkusen.

Hlozek er 1,88 metrar á hæð og skoraði átta mörk og átti þrettán stoðsendingar í 29 leikjum með Sparta Prag í tékknesku deildinni á liðnu tímabili Afskaplega spennandi leikmaður.

Leverkusen hafnaði í þriðja sæti þýsku Bundesligunnar á liðnu tímabili.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.