Ítalska stórveldið Juventus hefur mikinn áhuga á franska framherjanum Randal Kolo Muani.
Kolo Muani er 27 ára gamall og er með tvö ár eftir af samningi sínum við PSG sem keypti hann úr röðum Eintracht Frankfurt fyrir þremur árum síðan. PSG borgaði 75 milljónir evra, með 15 milljónir í boði aukalega sem árangurstengdar aukagreiðslur, en hann fann ekki taktinn með Frakklandsmeisturunum.
Fyrstu átján mánuðirnir hjá PSG voru lélegir svo hann var sendur til Juventus á lánssamningi og skein í ítalska boltanum, en Juve gat ekki leyft sér að festa kaup á leikmanninum.
Honum tókst ekki að skína hjá Tottenham á nýliðinni leiktíð en sýndi fína takta á köflum. Enska úrvalsdeildarfélagið virðist þó ekki ætla að festa kaup á honum. Kolo Muani, sem á 9 mörk í 32 landsleikjum fyrir Frakkland, kom með beinum hætti að 9 mörkum í 41 leik með Tottenham.
PSG vill selja sóknarmanninn sinn sem fyrst og hefur Juventus mikinn áhuga eftir að Loïs Openda og Jonathan David stóðust ekki væntingar á sínu fyrsta tímabili á Ítalíu.
Kolo Muani skoraði 8 mörk og gaf eina stoðsendingu í 16 deildarleikjum með Juventus.
Openda og David skoruðu samtals 7 mörk í 59 leikjum.
24.05.2026 23:11
De Zerbi: 10 til 12 leikmenn nógu góðir til að vera áfram




