02.07.14 - 13:35
Daníel Freyr Jónsson
Alfreð Finnbogason til Real Sociedad (Staðfest)

Alfreð Finnbogason er farinn til Spánar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Alfreð Finnbogason er genginn í raðir spænska úrvalsdeildarliðsins Real Sociedad frá Heerenveen í Hollandi.
Þessi mikli markaskorari skrifaði í dag undir fjögurra ára samning hjá Sociedad eftir að hafa staðist læknisskoðun í morgun.

Það hefur legið lengi í loftinu að Alfreð myndi yfirgefa Heerenveen í sumar eftir ótrúlega frammistöðu með félaginu. Skoraði hann 59 mörk í 70 leikjum á þeim tveimur árum sem hann spilaði í Hollandi.
Alfreð, sem er 25 ára gamall, kom til liðsins frá belgíska félaginu Lokeren.
Sociedad hafnaði í sjöunda sæti spænsku deildarinnar á síðustu leiktíð og tekur liðið þátt í undankeppni Evrópudeildarinnar fyrir komandi leiktíð.
Alfreð mun veita Mexíkóanum Carlos Vela og Imanol Agirretxe samkeppni um framherjastöðu liðsins.

Heimild: Heimasíða Real Sociedad