02.07.14 - 18:56
Brynjar Ingi Erluson
Helena Ólafsdóttir hætt með Val (Staðfest)

Helena Ólafsdóttir er hætt með Val

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Helena Ólafsdóttir er hætt með Val

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Helena Ólafsdóttir er hætt með lið Vals í Pepsi-deild kvenna en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins í dag.
Helena tók við Val í október 2012 en eftir slaka byrjun á mótinu á síðasta ári tókst henni að koma liðinu í annað sæti deildarinnar.
Valur hefur aftur á móti leikið undir getu í sumar og situr liðið nú í sjöunda sæti deildarinnar með 11 stig þegar sjö umferðir eru búnar.
Knattspyrnudeild Vals og Helena komust að samkomulagi í dag um að hún láti af störfum sem þjálfari kvennaliðsins.
Hún óskar félaginu góðs gengis í sumar en um leið þakkar Valur Helenu fyrir vel unnin störf og óskar henni velfarnaðar í framtíðinni.