02.07.14 - 12:16
Magnús Már Einarsson
Sindri Scheving til Reading (Staðfest)

Sindri Scheving.

Mynd: Heimasíða Vals

Sindri Scheving.

Mynd: Heimasíða Vals
Sindri Scheving hefur gengið til liðs við Reading en hann mun fara í U18 ára lið félagsins.
Sindri hefur verið undir smásjánni hjá Reading undanfarna mánuði en hann kemur til félagsins frá Val.
Sindri er fæddur árið 1997 en hann varð yngsti leikmaðurinn í sögu Vals til að semja við félagið þegar hann var einungis 14 ára.

Varnarmaðurinn Axel Óskar Andrésson úr Aftureldingu hefur einnig skrifað undir samning við Reading líkt og greint var frá í síðustu viku.