02.07.14 - 18:45
Magnús Már Einarsson
Zeman tekur við Cagliari (Staðfest)

Zdenek Zeman.

Mynd: Getty Images

Zdenek Zeman.

Mynd: Getty Images
Zdenek Zeman, fyrrum þjálfari Roma, hefur verið ráðinn þjálfari Cagliari í Serie A.
Zeman tekur við af Ivo Pulha sem stýrði Cagliari á lokakaflanum á síðasta tímabili og bjargaði liðinu frá falli.
Zeman var rekinn frá Roma í fegbrúar árið 2013 en þessi reyndi þjálfari hefur einnig stýrt liðum eins og Lazio, Lecce og Napoli á ferlinum.

,,Ég er 67 ára en ég held áfram að þjálfa því að ég elska að vera úti á velli,\" sagði Zeman.
,,Því eldri sem ég verð því meira vil ég vinna með ungum leikmönnum því þeir hjálpa mér að líða eins og ég sé ungur.\"