Fotbolti.net
02.07.16 - 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Anders Lindegaard keyptur til Preston (Staðfest)

Lindegaard færir sig um set

Lindegaard færir sig um set

Canon

Mynd: Getty Images

Markvörðurinn Anders Lindegaard er búinn að skrifa undir eins árs samning við Preston North End.

Lindegaard var á láni hjá Preston á nýliðnu tímabili og lék 14 leiki fyrir félagið.
Lindegaard hefur verið á mála hjá West Brom síðastliðið ár eftir að hafa komið frá Manchester United.

Lindegaard var eitt sinn líkt við Peter Schmeichel og þegar Man. Utd keypti hann biðu margir spenntir að sjá hvað hann gæti. Hann náði þó aldrei að skáka David de Gea almennilega og var seldur til West Brom.

West Brom ákvað að enda samningum við leikmanninn og leyfa honum að fara til Preston sem hann svo gerði.

Preston leikur í Championship-deildinni og endaði í 11. sæti á tímabilinu sem var að líða.

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.