02.07.16 - 11:42
Elvar Geir Magnússon
Henrikh Mkhitaryan til Man Utd (Staðfest)

Henrikh Mkhitaryan.

Mynd: Getty Images

Henrikh Mkhitaryan.

Mynd: Getty Images

Þýska félagi Borussia Dortmund hefur staðfest að armenski sóknarmiðjumaðurinn Henrikh Mkhitaryan sé orðinn leikmaður Manchester United.
Mkhitaryan er 27 ára gamall en þýska félagið segir í tilkynningu á heimasíðu sinni að tilboð United hafi verið of gott til að hafna því, sérstaklega í ljósi þess að leikmaðurinn verður samningslaus á næsta ári.

Það er nóg að gera á skrifstofunni á Old Trafford en Zlatan Ibrahimovic var staðfestur í gær.
Manchester United hafnaði í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar á liðnu tímabili en Jose Mourinho tók við stjórnartaumunum í sumar.
Mkhitaryan hefur fimm sinnum orðið leikmaður ársins í Armeníu en hann hefur verið hjá Dortmund síðan 2013. Þar á undan gat hann sér gott orð með Shakhtar Donetsk í Úkraínu.
Dortmund óskar Mkhitaryan góðs gengis í ensku úrvalsdeildinni og Evrópudeildinni.