Fotbolti.net
02.07.16 - 14:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Maarten Stekelenburg til Everton (Staðfest)

Stekelenburg er búinn að semja við Everton

Stekelenburg er búinn að semja við Everton

Canon

Mynd: Getty Images

Hollenski markvörðurinn Marteen Stekelenburg er genginn í raðir Everton í ensku úrvalsdeildinni.
Stekelenburg skrifaði undir þriggja ára samning, en hann kemur til Everton frá Fulham.

Hann er fyrsti leikmaðurinn sem Ronald Koeman kaupir til Everton, en þeir félagar hafa áður unnið saman.

„Ég er mjög ánægður - hlutirnir hafa gerst mjög hratt síðustu daga,\" sagði Stekelenburg.

„Hann (Koeman) fór til Everton og hann hringdi í mig og spurði hvort ég væri til í að koma með honum. Það var ekki erfitt að taka þá ákvörðun.\"

Stekelenburg var í láni hjá Southampton á síðusut leiktíð og lék þar einmitt undir stjórn Koeman, en þeir unnu einnig saman hjá Ajax á sínum tíma.

Heimild: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.