02.07.16 - 12:44
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Nóg að gera hjá Watford - Deeney framlengir (Staðfest)

Troy Deeney verður áfram hjá Watford

Mynd: Getty Images

Troy Deeney verður áfram hjá Watford

Mynd: Getty Images
Troy Deeney, fyrirliði Watford, er búinn að skrifa undir nýjan fimm ára samning við félagið.
Hann hefur undanfarið verið orðaður við meistaranna í Leicester, en nú er það ljóst að hann verður áfram hjá Watford.

Þetta eru ekki einu fréttirnar frá Watford því félagið er búið að kaupa tvo aðra leikmenn og selja einn.
Liðið er búið að fjárfesta í sóknarmanninum Isaac Success og er kaupverðið talið vera 12,5 milljónir punda. Ef það reynist rétt er hann sá dýrasti í sögu félagsins, en hann kemur frá Granada á Spáni.
Watford er einnig búið að kaupa varnarmanninn Christian Kabasele frá Genk fyrir 6 milljónir punda. Hann var í belgíska hópnum sem fór á EM, en Belgía féll úr leik í gær eftir tap gegn Wales.
Báðir þessi leikmenn gera fimm ára samning við Watford.
Félagið er ekki bara að kaupa því varnarmaðurinn Gabriele Angella var seldur til Udinese. Hann verður þar liðsfélagi Emils Hallfreðssonar, sem keyptur til Udinese í janúar. Angella var í láni hjá QPR í Championship-deildinni á síðasta tímabili.

Heimild: BBC