02.08.13 - 22:00
Brynjar Ingi Erluson
Diego Lugano til WBA (Staðfest)

Diego Lugano í leik með Úrúgvæ

Mynd: Getty Images

Diego Lugano í leik með Úrúgvæ

Mynd: Getty Images
West Bromwich Albion í ensku úrvalsdeildinni hefur fest kaup á úrúgvæska varnarmanninum Diego Lugano frá PSG, en hann gerir tveggja ára samning við félagið.
Lugano, sem er 32 ára gamall, gekk til liðs við PSG frá Fenerbahce árið 2011, en náði aldrei að festa sig í sessi og var lánaður til Malaga á síðustu leiktíð.
Hann hefur nú yfirgefið PSG fyrir fullt og allt og samið við WBA í ensku úrvalsdeildinni, en hann eins og áður segir gerir tveggja ára samning.
,,Ég er í skýjunum með að vera kominn til WBA, þar sem ég mun spila næstu tvö árin,\" sagði Lugano á Twitter.