Fotbolti.net
02.08.14 - 18:30
Grímur Már Þórólfsson
Ítalska deildin

Romulo til Juventus (Staðfest)

Romulo í leik með Verona

Romulo í leik með Verona

Canon

Mynd: Getty Images

Juventus hefur fengið Romulo á láni frá Hellas Verona með möguleika á kaupum.

Juventus mun borga eina milljón evra fyrir að fá leikmanninn á láni og þá er klásúla á um Juventus geti keypt leikmanninn fyrir 6 milljón evra eftir komandi tímabil.

Ef Romulo tekur þátt í 60% leikja hjá Juventus er klásúlan virkjuð og Juventus verður því að kaupa leikmanninn ef leikmaðurinn spilar nægilega marga leiki.
Juventus verður níunda félagið sem Romulo spilar fyrir en hann lék fyrir sex brasilísk félög áður en að hann fór til Fiorentina frá Cuzeiro árið 2012.

Romulo var á láni hjá Verona á síðasta tímabili frá Fiorentina en var keyptur til félagsins fyrr í sumar.

Heimild: Soccernet

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.